Þessi stóðst undir væntingum og er frábær sem
eftirréttur. Ekki skemmir fyrir að hægt er að
útbúa þessa með fyrirvara og geyma í frysti,
mjög hentugt. (ca. 2 daga).
-Hitaðu ofninn í 190°C
-Smyrðu formið með kókosolíu
-Hitaðu kókosolíuna og súkkulaðið á lágum hita
og hrærðu í á meðan svo það brenni ekki við.
Þegar það er bráðnað bættu við hunangi og
vanilla.
-Blandaðu saman hveiti, haframjöli og kakói
saman í skál. Bættu svo við möndlumjólkinni
ásamt egginu og hrærðu vel saman.
Helltu deginu í kökuform og bakaðu í miðjum
ofni í um 15-20 mínútur.
Mér finnst bráðnauðsynlegt að toppa kökuna með
kókosrjóma eða ferskum berjum.
Njótið!
|